Efnalaugin Kjóll og hvítt er bæði efnalaug og þvottahús.
Við tökum á móti, hreinsum/þvoum og pressum:
• Hreinsum allan almennan fatnað
• Skyrtur, skírnarkjóla, brúðarkjóla, leikbúninga
• Dúka, áklæði, gluggatjöld, mottur
• Sængur, koddar, svefnpokar, yfirdýnur
• Vatnsverjum úlpur,skíðafatnað,frakka og margt fleira
Hægt að sækja fatnað daginn eftir, jafnvel samdægurs eða allt eftir því hvað hentar viðskiptavini hverju sinni.
Fyrirtækjaþjónusta
Kjóll og hvítt býður upp á sérstaka heimsendingarþjónustu fyrir fyrirtæki og felur hún í sér að við sækjum það sem þarf að þvo eða hreinsa og skilum því til fyrirtækjanna á umsömdum tíma.
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Kjól og hvítt, Eiðistorgi, sími 561-1216 eða senda tölvupóst á efnalaugin@kjolloghvitt.is